Dagskrá Sjávarútvegsráðstefnunnar 2011

Sjávarútvegsráðstefnan verður haldin á Grand Hótel í Reykjavík 13.-14. Október 2011 og ber heitið ,,Frá tækifærum til tekjusköpunar". Nýustu útgáfu af dagskrá er hægt að sækja Hér. Helstu nýjungar frá síðustu Sjávarútvegsráðstefnu er kynning á frammúrstefnuhugmyndum og jafnframt munu bestu hugmyndirnar fá verðlaun á ráðstefnunni. Einnig verður veglegra ráðstefnuhefti þar sem m.a. verður að finna tölfræðilegar upplýsingar um íslenskan sjávarútveg. Á ráðstefnunni verða haldin 36 erindi og málstofur verða eftirfarandi:

  • Íslenskur sjávarútvegur
  • Markaðstækifæri í Evrópu
  • Sóknarfærði í veiðitækni
  • Markaðssvæði framtíðarinnar
  • Vöruþróun
  • Sjávarútvegur og fjölmiðlar
  • Tækifæri erlendis
  • Evrópusambandið og íslenskir fjölmiðlar
  • Sjávarklasinn á Íslandi

Í lokin munu vera samantektir frá málstofum, pallborðsumræður og kynningar á frammúrstefnuhugmyndum og verðlaunaafhending.