Framúrstefnuhugmynd Sjávarútvegsráðstefnunnar

Ert þú með framúrstefnuhugmynd til að efla íslenskan sjávarútveg og tengdar atvinnugreinar?

Sjávarútvegsráðstefnan kallar eftir framúrstefnulegum nýsköpunarhugmyndum, sem veita á viðurkenningu fyrir á næstu ráðstefnu vettvangsins þann 21.-22. nóvember á Grand hótel. Markmiðið er að hugmyndirnar séu framsæknar og frumlegar og skapi umræðugrundvöll eða nýja hugsun.

 

Það sem þarf að hafa í huga

Framúrstefnuhugmynd skal setja fram á hnitmiðaðan hátt þar sem fram kemur lýsing á hugmynd, tillaga að framkvæmd, væntanlegur afrakstur og áhrif til góðs fyrir ímynd íslenskra afurða (hámark 2 bls). Allir geta sent inn hugmyndir en þær þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Hugmyndin er framúrstefnuleg
  • Hugmyndin er raunhæf
  • Hugmyndin er framsækin og frumleg
  • Hugmyndin skapi umræðugrundvöll eða nýja hugsun 

Tímafrestur

Frestur til að skila inn umsóknum er 15. október 2013.

 

Nánari upplýsingar er að finna Hér