Sjávarútvegsráðstefnan 2011 - Dagskrádrög
Sjávarútvegsráðstefnan verður haldin á Grand Hótel í Reykjavík 13.-14. Október 2011 og ber heitið ,,Frá tækifærum til tekjusköpunar“. Helstu nýjungar frá síðustu Sjávarútvegsráðstefnu er kynning á frammúrstefnuhugmyndum og jafnframt munu bestu hugmyndirnar fá verðlaun á ráðstefnunni. Einnig verður veglegra ráðstefnuhefti þar sem m.a. verður að finna tölfræðilegar upplýsingar um íslenskan sjávarútveg.
Á ráðstefnunni verða haldin 35 erindi og málstofur verða eftirfarandi:
Íslenskur sjávarútvegur
Markaðstækifæri í Evrópu
Sóknarfærði í veiðitækni
Markaðssvæði framtíðarinnar
Vöruþróun
Sjávarútvegur og fjölmiðlar
Tækifæri erlendis
Evrópusambandið og íslenskir fjölmiðlar
Sjávarklasinn á Íslandi
Í lokin munu vera samantektir frá málstofum, pallborðsumræður og kynningar á frammúrstefnuhugmyndum og verðlaunaafhending.