Sjávarútvegsráðstefnan 2015 - Dagskrádrög í júlí
Næsta Sjávarútvegsráðstefna verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica dagana 19.-20. nóvember 2015. Á Sjávarútvegsráðstefnunni að þessu sinni eru 10 málstofur og flutt verða um 45 erindi. Hægt er að sækja dagskrádrög HÉR. Að þessu sinni er aðeins birt vinnuheiti á erindum, en endanleg heiti erinda og nafn fyrirlesara birtist í september.
Hlutverk Sjávarútvegsráðstefnunnar er að halda árlega sjávarútvegsráðstefnu og er tilgangur hennar að:
- stuðla að faglegri og fræðandi umfjöllun um sjávarútveg og
- vera vettvangur fyrir samskipti allra þeirra sem koma að sjávarútvegi á Íslandi