Sjávarútvegstefnan 2011

Ákveðið hefur verið að halda Sjávarútvegsráðstefnuna 2011 fimmtudaginn 13. október og föstudaginn 14. október.

Ráðstefnan verður haldinn á Grand Hótel í Reykjavík nánar tiltekið í ráðstefnusölunum Gullteigi og Hvammi.

Það er nú verkefni stjórnar félagsins að ákveða efnistök fyrir Sjávarútvegsráðstefnuna 2011. Í stjórn félagsins eru Guðbrandur Sigurðsson, formaður, Halldór Ármannsson, Halldór Þórarinsson, Hjörtur Gíslason, Kristján Hjaltason og Sjöfn Sigurgísladóttir.  Starfsmaður félagsins er Valdimar Ingi Gunnarsson.

Margar ágætar tillögur hafa komið bæði á Sjávarútvegsráðstefnunni 2010 og einnig hafa nokkrir sent tillögur í tölvupósti.